Sunnudagur 22. feb 2015 kl. 14:03
Veður heldur að ganga niður - Byrjað að ryðja götur
Sló í 53 m á Stórhöfða -Ekki vitað um alvarlegt tjón
Það er eins og veður sé heldur að ganga niður í Vestmannaeyjum og byrjað er að ryðja helstu götur. Enn er þó mjög hvasst og varla fært nema fyrir stóra fjórhjóla bíla. Síðasta athugun á Stórhöfða var klukkan 13.00 en þá var á austan stormur, 40 m á sekúndum og hiti rétt neðan við frostmark. Mesti 10 mínútna meðalvindur var 41 m á sekúndu og mesta hviðan 53 m á sekúndu. Þrátt fyrir þetta er ekki mikið um tjón, þakhorn losnaði á FES og hús af pallbíl fór af stað í Stóragerði. Björgunarfélagið hefur þó haft í nógu að snúast í að koma fólki á milli staða.
Veðurstofan spáir austan 20-30 m/s S-lands, snjókomu og skafrenningi, hvassast með S-ströndinni. Annars staðar austan og norðaustan 13-23, dálítil él og skafrenningur. Norðan 10-18 á morgun, en 15-23 SA-til. Él eða snjókoma N- og A-lands, en úrkomulaust annars staðar. Dregur meira úr vindi á V-verðu landinu seinninparinn á morgun. Frost 0 til 7 stig.
http://www.eyjafrettir.is/frettir/slo-i-53-m-a-storhofda-ekki-vitad-um-alvarlegt-tjon/2015-02-22
Sennilega lokatölur dagsins þegar kl. er 18:30:
Mesti 10 mín. meðalvindhraði í Vestm. 22.02.2015:
Stórhöfði 46,3 m/s. (kl.16.) (A-átt)
Vestm.bær 24,7 m/s. (kl.16.)
Surtsey 33,2 m/s. (kl.13.)
Básask.br. 23.m/s.
Eldfellshr. 33 m/s.
Landeyjah.
Mesta vindhviða í Vestmannaeyjum 22.02.2015:
Stórhöfði 56,6 m/s. (kl.16.)
Vestm.bær 37,9 m/s. (kl.16.) .
Surtsey 43,9 m/s. (kl.18.)
Básask.br. 38 m/s.
Eldfellshr. 44 m/s.
Landeyjah.
Lægsti/hæsti loftþrýstingur í Vestmannaeyjum 22.02.2015::
Stórhöfði 949,5 (kl.16) /
Vestm.bær .
Surtsey
Mesti 10 mín. meðalvindhraði í Vestm. 22.02.2015:
Stórhöfði 46,3 m/s. (kl.16.) (A-átt)
Vestm.bær 24,7 m/s. (kl.16.)
Surtsey 33,2 m/s. (kl.13.)
Básask.br. 23.m/s.
Eldfellshr. 33 m/s.
Landeyjah.
Mesta vindhviða í Vestmannaeyjum 22.02.2015:
Stórhöfði 56,6 m/s. (kl.16.)
Vestm.bær 37,9 m/s. (kl.16.) .
Surtsey 43,9 m/s. (kl.18.)
Básask.br. 38 m/s.
Eldfellshr. 44 m/s.
Landeyjah.
Lægsti/hæsti loftþrýstingur í Vestmannaeyjum 22.02.2015::
Stórhöfði 949,5 (kl.16) /
Vestm.bær .
Surtsey
Engin ummæli:
Skrifa ummæli