30.07.2008 15:09
Mesti hiti sem mælst hefur á Stórhöfða 21,6°C
30. júlí kl. 13.55
| |||||
Bongóblíða í Eyjum
| |||||
84 ára gamalt hitamet slegið á Stórhöfða | |||||
Algjör bongóblíða er í Vestmannaeyjum í dag en samkvæmt textavarpinu er nú 20,2 stiga hiti á Stórhöfða og vindstyrkur aðeins tveir metrar á sekúndu. Hitametið var slegið á Stórhöfða en mestur hiti sem mældist í dag var 21,6 gráða en þetta staðfesti Óskar J. Sigurðsson, vitavörður og veðurathugunarmaður á Stórhöfða.
"Ég var einmitt að fletta þessu upp áðan þannig að þetta er mér enn í fersku minni. Mestur hiti sem hafði mælst á Stórhöfða fyrir daginn í dag var 1924 en þá mældist 21,3 gráða en það er mjög sjaldgæft að hitastigið fari yfir 20 gráðurnar. Það er reyndar aðeins farið að kólna núna og þá færist rykmistur hér yfir. Þá mældist mestur hiti í Vestmannaeyjabæ 23,6 gráður í dag," sagði Óskar.
|
XXX
Engin ummæli:
Skrifa ummæli